Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Bloggar

Kveđja frá Liverpool

Image004Ákvađ eftir göngu međ Nonna í morgun ad fara ađ blogga á Íslensku, og ţá ađ nota tćkifćriđ ađ nýta nýja íslenska lyklaborđiđ mitt.

Ţetta er nokkurskonar prófraun í leiđinni á ađ ţjálfa heilann í ađ fara ađ hugsa aftur á föđurmálinu,(fćreyska er móđurmáliđ mitt). Kannski er mesta furđa hvađ íslenskan helst eftir 20 ára fjarveru, en ef einhverjir villast inná bloggiđ hjá mér, ţá efast ég ekki um ađ nokkrar stafsetningarvillur felist inn á milli.

Ég bý núna í Menningarborg Evrópu 2008 Liverpool, og hér er gott ađ vera.Eftir 14 ár í London og svo 4 ár í Manchester. Liverpool er nokkurskonar eyja á meginlandi Bretlands. Hér hafa menn sín eigin trúarbrögd, tungumál og menningu, og finnst mér oft eins og ég sé staddur á Íslandi, sérstaklega ţegar ég fer keyrandi í bćinn. Liverpool búar eiga ţađ nefnilega sameiginlegt međ okkur Íslendingum ađ hugsa bara um sig og sinn bíl, lítiđ fer fyrir tilliti til annara í umferđinni.

Nú eru 6 mánuđir liđnir af 2008 og dálítiđ sérstakt ad horfa yfir breytingarnar á borginni eftir umfangsmestu breytingar fyrr og síđar. Borgin er komin međ sterka sál og eru möguleikarnir endalausir. Enda enginn dagur eins í mínu lífi.

Ég reikna međ ađ blogga um reynslu mína hérna og ţađ sérstaka fólk sem verđur á vegi mínum, ágćtt svo ađ nota ţetta sem dagbók seinna meir.

Hér er komiđ há-sumar og glymur í rigningunni eins og best gerist. Viđ getum bara vonast eftir ađeins betri tíđ en í fyrra ţegar urđum ađ flytjast upp á efri hćđina í 2 mánuđi, eftir ađ allt fór á flot.

Fór međ Nonna ađ Calderstone Garđinum og var mikiđ um ađ vera og ţá ađallega uppbygging ungra fótboltamanna til framtíđarinnar. Já ţađ fer svolítid mikiđ fyrir fótbolta hér, en ég á nú nokkrar sögur um ákveđna leikmenn Liverpool, enda býr hún tengdó í sömu götu og Gerrard og Rooney(hann er reyndar fluttur núna) ţannig ađ hver veit nema ađ ég láti einhverjar sögur fylgja blogginu mínu á nćstunni.

Lćt ţetta duga í dag, er búin ad vera spá í ţetta svolítiđ lengi, svo ţađ er bara gaman ađ vera hérna.


Höfundur

Ingi Thor Jónsson
Ingi Thor Jónsson
Upplifun Islendings

Fćrsluflokkar

Eldri fćrslur

Maí 2025
S M Ţ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband